Flæði samskipta – Uppgötvun

Ég ætla að byrja nýja seríu af bloggum þar sem ég tek ákveðin ferli í samskiptum fyrirtækja við almenning og brýt þau upp í einingar og skoða nánar. Ég ætla að byrja á flæðiritinu (sjá flæðirit samskipta hér í valmynd hægra megin) sem við hönnuðum fyrir einhverjum mánuðum síðan og fara betur í einstaka þætti þess.

Uppgötvun

Fyrsta skrefið er þegar færsla er uppgötvuð og það þarf að fara að meta hvað á að gera í því.

Spurningin er hins vegar hvernig get ég uppgötvað þessar færslur?

Það eru nokkrar lausnir sem hægt er að nýta sér til þess að uppgötva færslur um fyrirtækið og ætla ég að fara örstutt í hverja.

Vaktarinn

Ég get ekki sleppt því að plögga Vaktaranum, en þetta er einmitt það sem hann gengur út á. Með því að hafa aðgang að Vaktaranum getur þú slegið inn leitarorð sem þú hefur áhuga á að fylgjast með. Vaktarinn skilar þér síðan niðurstöðum, þar sem þú getur séð hversu mikil umræða er um leitarorðin, hvernig hún hefur þróast yfir síðustu 90 daga og hreint og beint hvað er verið að segja. Þar að auki getur þú séð lista yfir allar færslurnar og smellt á hverja og eina og þannig komist að heimildinni.

Vaktarinn er mjög öflugur í þessu. Hann nær til allra helstu fréttamiðla, blogga, spjallþráða, samfélagsmiðla og meira að segja dagblaða. Niðurstöður eru uppfærðar nokkrum sinnum á klukkutíma fyrir þessa helstu miðla og nokkrum sinnum á dag fyrir restina. Þetta þýðir að þú getur verið með puttana á púlsinum og fylgst vel með. Þetta er kjörið tækifæri til þess að uppgötva færslur og byrja að vega og meta hvort það þurfi að svara þeim.

Google Alerts

Google alerts er frí þjónusta frá Google, sem er – eins og flestir vita – öflugasta leitarvél í heiminum. Alerts byggir á því að þú getur fylgst með leitarorðum og í hvert skipti sem Google finnur eitthvað nýtt með þeim leitarorðum, færðu tilkynningu um það. Þessi lausn nýtist þeim sem eru með lítið umtal um sig afar vel. Þeir sem eru meira umræddir eiga oft erfitt með að fylgjast með þessum tilkynningum og það er ekkert viðmót sem heldur almennilega utan um þetta.

Helsti kostur alerts er að það byggir á öflugustu leitarvél í heimi og er frítt! Helstu ókosturinn er sá að niðurstöður eru oft gamlar og skipta ekki máli. Annað vandamál er að Google finnur allar síður, þannig þetta getur verið fyrirtækjasíða eða eitthvað þar sem engin umræða á sér stað. Engu að síður er þetta góður kostur fyrir þau fyrirtæki sem hafa lítið af umræðu um sig og gera ekki miklar kröfur um utan um hald og viðmót.

Facebook search

Það vissu það kannski ekki allir en það er hægt að leita í statusum hjá fólki með opin prófíl á Facebook. Þetta er hægt að gera með því að skrifa nafnið á fyrirtækinu í leitarstikuna efst og velja “see more results…”. Þar veluru svo posts by everyone og voilá þú sérð svipaða niðurstöðu og hér á myndinni.

Kosturinn hér er auðvitað aðgangur að ótrúlega virku samfélagi, sem er sífellt að ræða um vörur og fyrirtæki. Ókosturinn er hins vegar sá að þú þarf að fara í gegnum þess leit og sikta út upplýsingarnar. Þetta getur verið tímafrekt ferli.

Vaktarinn býður þér upp á að sjá sömu upplýsingar frá íslenskum Facebook notendum með opinn prófíl!

Twitter search

Leitin á Twitter er góð leið til þess að fylgjast með umræðu um ákveðin málefni á Twitter. Þessi leit er frí og virkar svipað og Google gerir, nema leitar bara í Twittum sem hafa nýlega verið skrifuð.

Kosturinn hér er auðvitað að þetta er frítt og getur verið notað samhliða Google Alerts. Ókosturinn er auðvitað sá að þarna er engin leið til að halda utan um þetta og þú þarft að fara inn á síðuna til þess að byrja að leita. Svo má ekki gleyma að Vaktarinn tekur inn allar færslur af Twitter frá íslenskum notendum.

RSS og Google Reader

Með Google reader getur þú gerst áskrifandi að rss veitum héðan og þaðan. Þetta er ágæt leið til þess að fylgjast með þeim síðum sem þú hefur áhuga á. Hér er ekki víst að þú finnur umræðu um þig, en ert þó að fylgjast með.

Þetta getur verið mjög tímafrekt að skoða og ekkert víst að þú getur fundið eitthvað sem snertir þig.

Samantekt

Vaktarinn er mjög öflugur þegar kemur að því að ná yfir umræðu á netinu. Þau fyrirtæki sem eru mikið umrædd, vilja góða yfirsýn, halda utan um umræðuna á einum stað og fá aðgang að öllum upplýsingunum eiga að nýta sér Vaktarann. Það eru hins vegar frí tól sem hægt er að nota. Þau eru tímafrek og þú getur spurt þig hvort það sé ekki þess virði að greiða hóflegt verð fyrir Vaktarann og fá allt þetta á einum stað.

Ég hvet alla sem vita eitthvað um þessi mál að skrifa komment hér að neðan og benda mér á fleiri lausnir.

Guðmundur Gunnlaugsson

Markaðsstjóri Vaktarans

2 Responses to Flæði samskipta – Uppgötvun

  1. Pingback: Flæði samskipta – Mat « Vaktarinn – Umræðan á meðan hún á sér stað

  2. Pingback: Flæði samskipta – Svörun « Vaktarinn – Umræðan á meðan hún á sér stað

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.