Mikilvægi mælinga
nóvember 24, 2010 Rita ummæli
Ég rakst á mjög góða grein frá O’reilly Radar, þar sem hann Dr. Jonathan Reichental er að fjalla um mikilvægi mælinga í stjórnun. Hann fjallar um það hvernig mælingar geta hjálpað stjórnendum að taka réttar ákvarðanir. Það er góð myndlíking sem hann notar um flugmenn. Flugmenn læra það að treysta tækjunum sínum, því þegar þeir fljúga blint þá hafa þeir ekkert annað en tækin og þurfa að geta treyst þeim til að skila sér heilu af höldnu heim.
Þessi grein opnaði huga minn þegar ég las hana. Hún leggur áherslu á það af hverju stjórnendur þurfa að treysta mælingum. Þetta er mjög mikilvægt í samhengi við markaðssetningu og þjónustustjórnun. Ef þið eruð ekki meðvituð um hvað er í gangi, þá eru þið að fljúga blint.
Með Vaktaranum er komin ein mæling, sem nýtist í markaðssetningu og þjónustustjórnun.
Ert þú að hlusta?
Guðmundur Gunnlaugsson
Markaðsstjóri Vaktarans.