Samanburður við rannsókn Björgólfs – Bloggheimar
desember 2, 2010 Rita ummæli
Rannsókn á umræðu um útrásarvíkinga
Rannsókn okkar byggði upphaflega á gögnum frá vefréttamiðlum. Það kom í ljós að miðað við þær leitarforsendur sem við gáfum okkur, var ekki hægt að tala um að niðurstöðurnar væru að endurspegla rétta mynd á málinu. Þar af leiðandi fjarlægðum við þann hluta rannsóknarinnar.
Eftir stendur rannsókn okkar á bloggunum. Við ítrekum að við erum að vinna með þröng leitarskilyrði. Þessi leitarskilyrði eru:
Leitarorð: “Björgólfur Thor Björgólfsson”, “Jón Ásgeir Jóhannesson”, “Pálmi Haraldsson”, “Hreiðar Már Sigurðsson” og “Sigurður Einarsson”.
Leitartímabil: 1. mars – 31. ágúst.
Bloggin
Við vildum skoða sérstaklega bloggheima þegar kemur að umræðu um þessa einstaklinga. Hér eru helstu niðurstöður og umræður um þær.

Fyrst skoðuðum við hversu margir höfundar voru í heildina og hvert meðaltalið var. Samtals voru 178 einstaka höfundar (við skilgreinum höfund sem sér svæði, t.d. xyz.blog.is). Þeir skrifuðu að meðatali 4,79 færslur um einstaklingana. Topp 10 höfundarnir eru birtir á myndinni hér til hliðar.
Hér sjáum við að ritstýrðu bloggin á Eyjunni og Svipunni eru mjög atkvæða mikil á topp listanum. En þarna eru einstaklingar sömuleiðis sem hafa tjáð sig mikið um þessa einstaklinga.
Langstærsti hlutinn af höfundum skrifuðu aðeins eina færslu enda var staðalfrávikið næstum því 15 færslur. Þannig það voru ekki margir sem skrifuðu margar færslur um einstaklingana en dreifnin er mikil.
Við vildum skoða umræðuna nánar brotið niður á hvern einstakling.

Á myndinni hér að ofan sést að það eru oftar en ekki sömu aðilarnir sem eru að poppa upp sem höfundar að flestum greinunum fyrir hvern einstakling.
Áhugaverðast er að athuga muninn á þessari mynd og topp 10 myndinni. Með því að bera saman þessar myndir er hægt að sjá hvort það er einhver höfundur sem komst ekki á topp 10 en nær inn á topp 5 listann hjá einhverjum af einstaklingunum. Sem dæmi um þetta er t.d. bloggheimar.is sem skrifaði 6 greinar (60% af sínum færslum) um Björgólf Thor.
Fjöldi höfunda og meðafjöldigreina gefa líka áhugaverða mynd af umræðunni. Almennt eru á bilinu 30-60 höfundar að tjá sig um fjóra af fimm einstaklingunum. Þetta breytist þegar kemur Sigurði Einarssyni. Í hans tilviki sáu 103 höfundar sér tilefni til þess að tjá sig um hann, sem er sirka 55% hærra en næst hæsti einstaklingur.
Maður spyr sig þá: Er Sigurður umtalaðastur af þeim?
Enn sagan er ekki öll sögð því meðalfjöldi greina gefur aðra mynd á þetta. Hjá fjórum af fimm einstaklingunum er meðalfjöldi greina á bilinu 2,2-2,9 greinar. Það er svo Jón Ásgeir sem stendur út með 4,8 greinar að meðaltali. Það eru aðeins 57 höfundar sem tjá sig um hann.
Samkvæmt þessu er Jón Ásgeir vinsælt umræðu efni hjá þeim sem tjá sig yfir höfuð um hann. Þá er gott að kíkja í topp 5 listann og þar sést að Eyjan er mikið að tala um Jón Ásgeir, en það eru þrír höfundar frá Eyjunni sem tjá sig mikið um Jón Ásgeir.
Það ber að skilja að undir Eyjunni eru athugasemdir leyfðar, sem eru taldar með.
Guðmundur Gunnlaugsson
Markaðsstjóri Vaktarans