Bráðum koma blessuð jólin!
desember 22, 2010 Rita ummæli
Jólaundirbúningurinn
Við hjá Vaktaranum erum komin í sannkallað jólaskap. Á síðustu dögum höfum við verið að leggja lokahönd á jólaundirbúninginn, skrifstofan okkar er orðin vel skreytt, jólatréð er komið upp og um síðustu helgi komum við saman í hátíðarskapi með vinum og ættingjum og snæddum dýrindis jólamat.
Nú eigum við bara eftir að bragða á skötunni og bíða þangað til aðfangadagur rennur upp!
Því fannst okkur kjörið að skoða hvernig landinn hagaði sínum jólaundirbúningi með aðstoð Vaktarans.
Landsmenn deildu svo sannarlega jólaundirbúningi sínum á netinu, bæði með vinum og ættingjum á Facebook og síðan með öðrum netverjum á spjallvefjum og á bloggum.
Jólahlaðborðin sívinsæl
Hjá mörgum landsmönnum eru engin jól, nema að skella sér á jólahlaðborð í aðdraganda jólanna.
En hvaða jólahlaðborð voru vinsælust í umræðunni á netinu í ár?
Það voru tvö jólahlaðborð sem stóðu upp úr í umræðunni, en það voru jólahlaðborðin hjá Grand Hóteli og í Turninum.
Á myndinni má sjá umtalið um þessi tvö jólahlaðborð, en mest var rætt um þau á Facebook. Þó að jólahlaðborðin hjá Grand Hótel og Turninum voru vinsælust, var einnig mikið rætt um jólahlaðborðin hjá Argentínu, Vox, Lækjarbrekkur, Geysi, Perlunni, Húsasmiðjunni og hjá Rangá.
Jólabaksturinn ómissandi í aðventunni
Landsmenn kunna að gera gott við sig á aðventunni og eru jólasmákökurnar engin undantekning þar á.
Landsmenn voru tímanlega í jólabaksturinn í ár, en umræðan um baksturinn náði hátindi í byrjun desember en fór svo dalandi þegar líða fór á aðventuna.
Það er því greinilegt að margir landsmenn hafa fengið að njóta afrakstur baksturins í jólaundirbúningnum.
Jólalögin og jólamyndirnar koma landsmönnum í jólaskap
Jólalögin og jólamyndirnar eru ómissandi hluti af jólaundirbúningi margra, enda koma þau manni í sannkallað jólaskap.
Fátt er notalegra en að hlusta á falleg jólalög í aðventunni og því kom ekki á óvart hversu mikið var rætt um jólalög á netinu í desember.
Þegar kafað var dýpra í umræðuna voru klassísku jólalögin almennt vinsælust og svo jólalögin með Baggalúti. En eitt jólalag stóð þó upp úr umræðunni sem vinsælasta jólalag landsmanna en það var “Ef ég nenni” með Helga Björnssyni.
Jólamyndirnar eru ekki síður mikilvægar í aðventunni og kannast flestir landsmenn við myndirnar Christmas Vacation, The Nightmare Before Christmas og The Grinch.
En vinsælasta jólamynd landsmanna var án efa The Grinch.
Hvað verður svo í jólamatinn hjá landsmönnum?
Svo virðist vera að Hamborgarhryggurinn hafi vinningin í ár, en þó er rjúpan einnig vinsæl sem áður fyrr.
Eitt virðist þó vera að landsmenn munu borða góðan mat um jólin og vera saddir og vel nærðir þegar nýtt ár gengur í garð.
Við hjá Vaktaranum óskum þér og þínum gleðilegrar hátíðar!
Um CLARA
CLARA fylgist með umræðunni á meðan hún er að gerast, hvort sem er í bloggi, á fréttasvæðum eða öðrum vettvangi þar sem neytendur geta tjáð sig og haft skoðanaskipti á Internetinu. Þetta er gert sjálfvirkt og á rauntíma með aðstoð gervigreindar.
Þannig hjálpar CLARA fyrirtækjum við almannatengsl, að þróa beittara markaðsstarf og vöruþróun með því að öðlast dýpri innsýn inn í almenningsálitið, hvernig það þróast og hvað það er sem hefur áhrif. CLARA rekur fjölmiðlavaktina Vaktarinn.is sem mörg af stærstu fyrirækjum landsins nota til að fylgjast með umtali á netinu.



