Handboltaþjóðin

Íslendingar og Ísland eru þekkt fyrir ýmislegt. Íslendingar voru (eru) víkingar. Ísland er grænt en Grænland er hvítt. Nýlega hefur þetta breyst í Íslendingar eru útrásarvíkingar og Ísland er grænt og gjaldþrota á meðan Grænland er ennþá, bara, hvítt. En það er önnur þróun sem hefur átt sér stað í orðspori Íslands á undanförnum árum. Við erum góð í handbolta! Ísland hefurnáð góðum árangri í stórmótum síðustu ára. Fyrir vikið hafa Íslendingar orðið að handboltaþjóð.

Við vildum athuga hversu duglegir Íslendingar eru við það að tala um handbolta og HM í handbolta sem stendur yfir núna. Til þess að sjá heildarumræðuna og setja hana í smá sögulegt samhengi, þá tókum við umfjöllun um tvö viðfangsefni á síðustu 90 dögum.

Bláa línan táknar umfjöllun um handbolta á meðan rauða línan táknar umfjöllun um heimsmeistaramót. Við sjáum að umræðan um bæði viðfangsefnin eru frekar stöðug á þessu 90 daga tímabili fram að mótinu í Svíþjóð. Það er líka áhugavert að sjá að það er sambærilega mikið magn af umræðu á þessu tímabili fram að mótinu. En við höfum áhuga á umræðu á rétt fyrir og á meðan mótinu stendur. Með því að þrengja leitartímabilið sjáum við hvernig umræðan hefur verið frá því 1. janúar 2011 þar til 24. janúar 2011:

Hér fáum við betri mynd af umfjölluninni um heimsmeistaramótið í handbolta sem er í gangi í Svíþjóð. Það virðist sem að í hvert skipti sem við spiluðum hoppar umfjöllunin (rauðu punktarnir) en dettur svo niður þegar það er pása. Umfjöllunin nær hámarki þann 14. janúar þegar við unnum Ungverja 32-26. Það er líka áhugavert að sjá að umræðan er meiri á meðan riðlakeppnin og allt gekk vel, en er svo minni eftir því sem líður á milliriðilinn. Það verður áhugavert að skoða þetta aftur eftir mót og sjá hvort þetta breytist eitthvað.

Ef við lítum á magn umræðu þá er áhugaverð mynd sem kemur upp:

Lang mest er fjallað um handboltann og heimsmeistaramót á samfélagsmiðlum (Twitter og Facebook). Fréttasíðurnar koma svo næstar, en þær eru oft duglegar við að birta efni frá stórmótum, s.s. viðtöl og fleira. Blogg og spjallsíður eru einnig sterkar á meðan að dagblöðin fylgja fljótt á eftir.

Ef við köfum aðeins ofan í hvað er á bakvið þessar rúmlega 6.000 færslur um handbolta og heimsmeistaramótið, þá sjáum við mjög skemmtilega mynd á umræðuna.

Vinstra megin í rauðu er þau orð sem helst tengjast heimsmeistaramótinu. Þarna er fátt sem kemur á óvart og tekur þetta orðaský umræðuna frekar vel saman á stærri skala. Í Vaktaranum er í boði að kafa dýpra ofan í niðurstöðurnar með því að smella á orð í skýinu og fá umræðuna tengda því. Það gæti gefið aðra mynd, en við sleppum því fyrir þetta orðaský.

Hægra megin í bláu eru þau orð sem helst tengjast handbolta. Þar kemur mjög skemmtilega mynd á umræðuna. Það er helst verið að tala um handbolta leik, en einnig er verið að tala um landsliðið og áfram Ísland. Það er hins vegar umræðan um stöð tvö og sýningarréttinn sem er áhugaverð. Ef við skoðum orðaskýið vel, þá eru það frasar eins og opinni dagskrá, ekki kaupa sýningarréttinn og myp2p.eu og tvunetworks.com sem stökkva hvað mest á mann.

Það er greinilegt að handboltaþjóðin lét það skipta sig miklu máli hvort leikir voru í opinni dagskrá. Þar var sterkast átak á Facebook, þar sem skorað var á Stöð 2 að sýna leikina í opinni dagskrá. Það var líka átak á Facebook sem dreifðist mjög hratt, þar sem fólk setti stöðuuppfærslu þess efnis að “ef enginn myndi horfa á HM í handbolta 2011 þá myndi Stöð 2 ekki kaupa sýningarréttinn aftur og við getum horft á þetta í opinni dagskrá á RÚV næstu árin”. Þetta gífurlega mótlæti gerði það að verkum að fólk reyndi að leita leiða til þess að sjá leikina á netinu og útskýrir síðasta frasann. Enn og aftur var það átak á Facebook þar sem fólk lét það ganga að síðurnar myp2p.eu og tvunetworks.com væru að sýna leikina á netinu.

Það er auðvelt að skilja fólk sem er sárt yfir því að þurfa að borga fyrir það að horfa á Strákana okkar keppa. Þessar niðurstöður undirstrika það. Þetta sýnir hversu mikilvægt það er að fylgjast vel með, því að umræðan er komin í hendur fólksins. Samfélagssíður, bloggsíður og spjallsíður eru komnar til þess að vera. Það er þitt að ákveða hvort þú ætlir að hlusta og taka þátt.

Handboltakveðja,

Vaktarinn

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.