Mottumars

Mottur eru á allra vörum þessa dagana. Hvert sem maður lítur má sjá mottur í alls konar gerðum, stærðum og lögun prýða karlpening landans.

Krabbameinsfélag Íslands stendur nú fyrir Mottumars annað árið í röð,en söfnunin í fyrra gekk vonum framar. Í ár er stefnt að því að toppa árið í fyrra sem mun eflaust takast, ef marka má netheimana, sem loga í umræðunni um mottur og áheit.

Þar sem við erum forvitið fólk í eðli okkar, ákváðum við að kafa aðeins dýpra ofan í umræðuna með hjálp Vaktarans og sjá hver umræðan er í netheimum.
Það má glögglega sjá á frasaskýinu fyrir ofan hversu gott er að sjá innihald mikið magn umræðu á augabragði með hjálp Vaktarans. Eins og má sjá á frasaskýinu fyrir ofan er mest verið að tala um að „taka þátt“, „byrjaður að safna“,„krabbameinsfélagsins um karlmenn“, „karlmenn og krabbamein“ og svo „rottumars“ (þar sem kvenpeningur landsins hefur ákveðið að styðja við bakið á sínum mönnum og safna sínu eigin.)

Umræðan um mottumars náði hátindi fyrsta dags mánaðarins eins og má sjá á myndinni hér fyrir neðan.

Umræðan er lang öflugust á Facebook, þar sem einstaklingar tjá sig um motturnar sínar og hvetja vini og vandamenn að heita á sig.

Við fylgjumst svo sannarlega spennt með út mars og að sjálfsögðu tekur CLARA þátt í mottumars!

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.