Nákvæm leit 2

Með nákvæmari leit getur þú skrifað inn nokkrar skipanir í leitarstrenginn til þess að þrengja niðurstöðurnar. Við skulum líta á þessar skipanir og taka svo dæmi um hvernig þær virka.

Fyrsta skipun – OR

OR skipunin leyfir þér að finna nokkur leitarorð undir einni leit. Það er að segja ef ég vil finna allar greinar sem innihalda orðin Landsbanki eða Icesave þá nota ég OR skipunina.

Með þessari leit myndi ég finna greinar sem innihalda Landsbanki og svo greinar sem innihalda Icesave. Þessi orð þurfa ekki að birtast saman í grein.

Önnur skipun – AND

Með AND skipuninni finnur þú allar greinar sem innihalda tvö eða fleiri leitarorð. Ef ég hef áhuga á að sjá allar greinar sem innihalda orðið Landsbanki og líka orðið Icesave þá nota ég AND skipunina.

Niðurstaðan úr þessari leit væru allar greinar sem Vaktarinn finnur sem innihalda bæði Landsbanki og Icesave. Þannig myndu greinar sem innihalda Landsbanki en ekki Icesave ekki birtast.

Þriðja skipun – NOT

Þessi skipun leyfir þér að sía betur greinar. Með því að nota NOT þá get ég fundið greinar sem innihalda Landsbanki en ekki Icesave. Þannig útiloka ég alla umræðu tengda Icesave.

Gott er að nota NOT skipunina eftir á. Með því er átt að leita fyrst frekar almennt og sjá hver umræðan er. Þannig er hægt að átta sig á óþarfa umræðu og bæta við NOT skipunum til þess að fínpússa leitina.

Fjórða skipun – Gæsalappir

Þegar þú vilt finna ákveðna samsetningu af orðum eða nöfn þá skal nota gæsalappir ”  ”.

Með leitinni á myndinni hér fyrir ofan myndi Vaktarinn finna alla umræðu um Halló Akureyri. Ef gæsalöppum er sleppt þá myndi Vaktarinn finna alla umræðu um Halló og Akureyri, sem er ekki það sem við viljum í þessu tilviki.

Fimmta skipun – Svigi

Ef þú hefur áhuga á að skoða fleiri en tvö orð eða nota fleiri en eina skipun þá er best að nota sviga ( ). Sviginn hópar saman svipaðar skipanir.

Á myndinni er búið að hópa saman ESB og Evrópusambandið. Með þessari leit myndi ég finna greinar sem innihalda ESB og Aðild eða Evrópusambandið og Aðild.

Önnur dæmi um notkun á sviga væri að hópa saman mismunandi stafsetningar á orði:

(Coke OR “Coca Cola” OR Kók OR “Kóka Kóla”) NOT (Pepsi OR Sprite)

Þessi leita myndi finna greinar um allar þessar mismunandi tegundir af stafsetningu Coke vörumerkisins og útiloka allar greinar sem innihalda orðin Pepsi eða Sprite.

Sjötta skipunin – Dollaramerki

Með því að setja Dollaramerki $ á eftir orði þá leitar Vaktarinn að því orði í þeirri beygingarmynd sem þú skrifaðir. Þar sem Vaktarinn beygir orðin venjulega þá hentar þetta vel fyrir vörumerki sem eru í ákveðinni beygingarmynd.

Leitin hér að ofan myndi finna allar greinar um Símann og Farsími eða Tal og ADSL. Vaktarinn myndi ekki beygja Síminn eða Tal. Þannig eru allar greinar útilokaðar sem gætu innihaldið t.d. símanum/tali og ADSL.

Þá erum við búin að fara í gegnum allar þær skipanir sem þú getur notað. Nú er komið að ykkur að prófa þær og sjá hvernig þær virka.

Svona nákvæm leit kallast Boolean leit og þið getið lesið meira um það hér: http://internettutorials.net/boolean.asp

Þetta getur verið flókið og þess vegna eru starfsmenn Vaktarans alltaf til í að hjálpa þér. Endilega hafðu samband ef það er eitthvað sem þú heldur að við getum aðstoðað þig með.

Þú nærð í okkur í gegnum:

Sími: 5128010

Email: info@clara.is

Netsamfélagið: http://getsatisfaction.com/clara

Kær kveðja,

Vaktarinn

2 Responses to Nákvæm leit 2

  1. Pingback: Að stilla RSS úr Vaktaranum « Vaktarinn – Umræðan á meðan hún á sér stað

  2. Pingback: Að stilla RSS úr Vaktaranum | Vaktarinn

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.